Fréttir

Jón Maríuson íslandsmeistari í pylsuáti 2007

Íþróttagoðið Jón Maríuson kom sá og sigraði á íslandsmeistarmótinu í pysluáti. Gerði Jón sér lítið fyrir og setti íslandsmet í greininni, hann torgaði 14 pylsum á 12 mínutum!!

Menningartónleikar Reykjavík FM 101,5, Kjarnafæðis og Max raftækja fóru fram í blíðskaparveðri á menningardaginn. Fjölmargir gestir lögðu leið sína í garðinn á Dillon og var garðurinn pakkaður þegar íslandsmeistaramótið í pylsuáti fór fram kl 18:00. Eins og áður sagði þá var það Jón Maríuson sem sigraði og setti um leið íslandsmet í greininni þegar hann torgaði hvorki meira né minna en 14 heilum Kjarnafæði pylsum með brauði á 12 mínutum!!

Hlaut Jón að launum forláta farandbikar, gjafakörfu frá Kjarnafæði og gjafabréf frá Myllunni. Jón hefur lýst því yfir í viðtali við Blaðið að hann ætli sér að verja titilinn á næsta ári en Íslandsmeistarmótið 2008 mun fara fram á Menningarnótt að ári liðnu. Í öðru sæti varð Kristján Knútsson en hann kom niður 10 pylsum.

Ægir Eyjólfsson yfirgrillari Kjarnafæðis sá svo um að grilla Kjarnafæði pyslur ofan í mannskapinn, svo enginn þyrfti að fara svangur heim. Hljómsveitirnar Dikta, Jeff Who, Lights on the Highway og Mínus lokuðu svo frábærum degi og við lokatóna Mínusliða hófst flugeldasýningin ógurlega.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning