Jólakringla

Það er siður í Skandínavíu að bjóða upp á góða kringlu á jólunum. Þennan sið hafa fleiri og fleiri tekið upp á Íslandi og borið fram ljúffenga jólakringlu í fjölskylduboðum milli jóla og nýárs.
| 375 g | Smjör (kalt) |
| 500 g | Hveiti |
| 1 dl | Mjólk (volg) |
| 1 bréf | Þurrger (eða 50 g. pressuger) |
| 2 stk | Egg |
| 1 tsk | Kardimomma, mulin |
- Myljið smjörið í hveitinu.
- Bætið við sykri og kardimommudropum.
- Leysið upp gerið í volgri mjólkinni. Blandið því og eggjunum saman við deigið og hnoðið vel.
- Setjið í skál með plastfilmu yfir og látið hefast í 30 mín.
Fylling:
| 125 g | Smjör (lint) |
| 125 g | Sykur |
| 125 g | Marsípan |
| 1/2 dl | Rúsínur |
Egg til penslunar, möndluflögur og perlusykur til skrauts.
- Rífið marsípanið gróft og hrærið saman fyllingunni.
- Fletjið deigið út svo úr verði langur renningur.
- Setjið fyllinguna í miðju deigsins og rúllið því upp í "pylsu" (látið brotið snúa niður). Látið á bökunarpappír og formið "pylsuna" í kringlu. Látið kringluna hefast í 30 mín.
- Penslið kringluna með eggi og stráið möndluflögum og perlusykri yfir.
- Bakið í uþb. 30 mín. við 225°C.


