Jólagrautur að hætti mömmu

| 2 dl | Hrísgrjón (grautargrjón) |
| 5 dl | Vatn |
| 5 dl | Nýmjólk |
| 3-5 msk | Sykur |
| 1/2 tsk | Salt |
| 3,5 dl | Rjómi, þeyttur |
| 100 g | Suðusúkkulaði (grófsaxað) |
| 1 msk | Sherry |
| 1-2 tsk | Vanillusykur |
| 1 stk | Heil mandla, afhýdd |
| Bláber og jarðaber |
- Setjið vatn, mjólk, salt og sykur í pott og setjið hrísgrjónin útí og sjóðið í 30-40 mín. á lágum hita og hrærið reglulega í, svo ekki brenni við.
- Takið grautinn af hellunni og bætið við sykri. Setjið grautinn í skál og afkælið.
- Hrærið rjóma, möndlunni, súkkulaði og sherry út í kaldann grautinn. Smakkið til með vanillusykri.
- Berið grautinn fram með berjum eða góðri berjasósu.


