Hunangsgljáður Hamborgarhryggur

Lúxusútgáfa af sígildum rétt. Tilvalin á jólum, páskum og við önnur hátíðleg tækifæri.
| 1 stk | Hamborgarhryggur |
| 2 l | Vatn |
| 2 dl | Rauðvín |
| 1 stk | Laukur |
| 1 stk | Sellerístilkur |
| 10 stk | Svört piparkorn |
| 4 stk | Negulnaglar |
-
Setjið hamborgarhrygginn í vatn ásamt víni, gróft söxuðu grænmeti, pipar og negul. Látið suðu koma rólega upp og sjóðið við vægan hita í 30-40 mín.
-
Takið hrygginn úr soðinu og látið kólna í 20 mín.
Hunangsgljái
| 2 msk | Sætt sinnep |
| 2 msk | Hunang |
| 2 msk | Púðursykur |
| 1 msk | Edik |
- Blandið hráefnunum í hunangsgljáann og penslið hrygginn með honum. Setjið í 180°C heitan ofn í 15 mín.
-
Berið fram með rauðvínssósu, brúnuðum kartöflum og rauðkáli.
Rauðvínssósa
| 7 dl | Soð úr potti |
| 40 g | Hveiti |
| 40 g | Smjörlíki |
| 1 dl | Rauðvín |
| 1 msk | Rauðvínsedik |
| 1 msk | Rifsberjahlaup |
| 1 dl | Rjómi |
-
Fleytið og sigtið soðið. Látið suðuna koma upp.
-
Lagið smjörbollu úr smjörlíki og hveiti. Hrærið soðið rólega út í.
-
Bætið út í rauðvíni, ediki, rjóma og hlaupi. Látið sjóða í nokkrar mín.
-
Bragðbætið með svínakjötskrafti ef þurfa þykir.


