Havana Rjómi
Eftirréttir - þriðjudagur 26.jún.07 10:45 - Lestrar 886

Dásamlegur eftirréttur (sem þó ekki má borða í of miklu magni ef aka þarf heim).
2 dl Havana Club romm, 7 ára (eða annað gott romm) 250 g Makkarónukökur 50 g Suðusúkkulaði, hakkað 3 stk Bananar 3 stk Perur 5 dl Rjómi
- Myljið makkarónurnar og hellið romminu yfir. Látið blönduna standa í amk. 1 klst.
- Þeytið rjómann og blandið rommblöndunni í.
- Sneiðið bananana og skerið perurnar í bita eða þunnar sneiðar. Hrærið saman við rjómablönduna og bætið megninu af súkkulaðinu út í.
- Stráið smá súkkulaði yfir að lokum.
Verði ykkur að góðu!


