Hátíðarís

Frábær og einfaldur ís sem smellpassar á veisluborð um jólin og páskana, ja bara hvaða tækifæri sem er. Í upprunalegu uppskrifinni er notað Toblerone súkkulaði en auðvitað má skipta því út fyrir hvaða gott súkkulaði sem er og um að gera að nota íslenskt.
| 5 stk | Eggjarauður |
| 0,5 dl | Púðursykur |
| 150 g | Toblerone, brætt |
| 5 dl | Rjómi |
| 100 g |
Toblerone, grófsaxað |
- Þeytið eggjarauður og sykur saman í hrærivél þar til blandan er orðin ljós og létt.
- Bræðið 150 g af Tobleronesúkkulaði yfir vatnsbaði.
- Kælið súkkulaðið lítillega og hellið því síðan út í mjórri bunu og blandið vel saman.
- Hrærið rjómann og blandið varlega saman með sleif.
- Bætið súkkulaðibitunum að lokum út í.
- Hellið blöndunni í fallegt mót og frystið í amk. 4 klst.


