Uppskriftir

Hangikjöt með uppstúf

Þjóðhátíðarréttur íslendinga. Ilmurinn af soðnu hangikjöti er ómótstæðilegur og ráðleggjum við öllum að nota alvöru hangikjöt, kofareykt eða taðreykt.

1 stk  Hangilæri eða -frampartur 

  • Setjið hangikjötið í stóran pott. Hellið köldu vatni yfir  þar til það hylur kjötið. Látið suðuna koma rólega upp á vægum hita. Slökkvið á hellunni þegar suðan kemur upp. (Ath. sumir kjósa að láta kjötið sjóða í 20-30 mín. áður en slökkt er undir). Látið ekki bullsjóða í pottinum.
  • Hafið pottinn á hellunni og látið kjötið kólna í pottinum undir loki.
  • Berið hangikjötið fram með uppstúf, soðnum kartöflum, grænum Ora baunum og laufabrauði.

Uppstúf

50 g  smjör
50 g  hveiti 
1 l  mjólk 
½ tsk  salt 
1-3 msk  sykur 
ögn  hvítur pipar 

  • Bræðið smjörið í potti, hrærið hveitinu saman við, þannig að úr verði smjörbolla.
  • Bætið mjólkinni varlega í og hrærið uns kekkjalaust. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið vel í á meðan.
  • Kryddið með salti, sykri og pipar.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning