Entrecote með rauðvínssósu

Ef eitthvað fínt stendur til, þá er þessi tilvalin. Fljótleg og auðveld.
Fyrir 4
| 4 stk | Entre cote-steikur (nautafile með fitu) |
Salt og pipar
Rauðvínssósa
| 6 stk | Skalottlaukar |
| 250 g | Sveppir |
| 2 dl | Rauðvín |
| 30 g | Smjör |
| 2-3 dl | Dökkt kjötsoð (vatn + kjötkraftur) |
- Steikið fínhakkaðan laukinn og fjórðung af sveppunum.
- Bætið við rauðvíni. Sjóðið niður um uþb. helming og bætið þá við kjötsoðinu. Látið suðuna koma upp og hrærið smjörinu saman við.
- Brúnið steikurnar á báðum hliðum á vel heitri pönnu. Lækkið hitann og steikið steikurnar að eigin smekk.
- Kryddið með salti og pipar.
- Ristið sveppina á þurri pönnu þar til þeir verða gyltir. Stráið smá salti yfir þá.
Verði ykkur að góðu!


