Emmur

Þessar hafa slegið í gegn hjá starfsfólki Kjarnafæðis og verða vinsælustu jólasmákökurnar í ár. Uppskriftin er fengin af matseld.is
80 stk.
| 5 dl | Púðursykur, þéttfullir |
| 450 g | Mjúkt smjör |
| 3 stk | Egg |
| 2 tsk | Vanillusykur |
| 2½ dl | Haframjöl |
| 7½ dl | Hveiti |
| 1 tsk | Matarsódi |
| 1 tsk | Lyftiduft |
| 1 tsk | Salt |
| 1 pund | M&M kúlur = 1 poki 453,6 g |
| 2½ dl | Ljósir súkkulaðidropar |
- Þeytið saman púðursykur og smjör þar til það er létt.
- Bætið eggjum, vanillu og haframjöli út í og hrærið vel.
- Blandið saman restinni af þurrefnunum og hrærið smám saman útí deigið.
- Bætið að lokum m&m og súkkulaðidropum út í og blandið vel saman við. Kælið deigið smástund.
- Setjið með teskeið á ósmurðar plötur og bakið við 200°C í um 8 mínútur. Látið standa í 2 mínútur áður en kökurnar eru teknar af plötunni.


