Brownies

125 g Smjör 185 g Dökkt súkkulaði 250 g Sykur 2 tsk Vanilludropar 2 stk Egg 125 g Hveiti 60 g Valhnétur, hakkaðar
- Bræðið smjör og súkkulaði saman í skál yfir vatnsbaði. Kælið súkkulaðiblönduna svolítið og hrærið síðan öðrum hráefnum saman við.
- Setjið degið í velsmurt ferkanntað form (20x30cm) og bakið í 30 mín. við 180°C. Kakan á að vera svolítið klesst í miðjunni (karmellukennd).
Verði ykkur að góðu!


