Danskar Frikadellur með lauksósu
Aðalréttir - fimmtudagur 28.jún.07 09:42 - Lestrar 1074

Sígild uppskrift af dönskum kjötbollum, bornum fram með lauksósu.
Fyrir 4
| 300 g | Svínahakk |
| 1 tsk | Salt |
| 1 stk | Egg |
| ½ stk | Laukur, fínt saxaður |
| 1 dl | Mjólk |
4 msk | Hveiti |
Pipar
- Blandið saman kjöti, salti, eggi og lauk.
- Bætið síðan mjólkinni smám saman við.
- Blandið síðan hveiti við og pipar að smekk.
- Formið með matskeið 8 Fríkadellur og steikið á pönnu, upp úr smjöri í u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið.
- Berið Fríkadellurnar fram með lauksósu, soðnum kartöflum og góðu grænmeti.
Lauksósa
| 1 stk | Laukur, fínt saxaður |
| 1 msk | Smjör |
1 dl | Vatn |
| 2 stk | Svínakjötkraftur (má vera annar kraftur) |
½ l | Mjólk |
Matarlitur
Salt og pipar
- Steikið laukinn upp úr smjörinu í u.þ.b. eina mín.
- Bætið vatni og krafti við og látið sjóða í 3-4 mín.
- Hristið eða hrærið mjólkina og hveitið saman og bætið út í lauksoðið. Látið suðuna koma varlega upp og látið þetta malla í 4-5 mín. Hrærið reglulega.
- Bætið matarlitnum í og smakkið til með salt og pipar.
Verði ykkur að góðu!


