Bóndabrauð

Gamaldags íslenskt brauð sem einfalt er að baka. Ódýrt, hollt og gott.
| 400 g |
Hveiti |
| 50 g |
Heilhveiti |
| 50 g |
Rúgmjöl |
| 2 tsk |
Þurrger |
| 3 dl |
Mysa (eða vatn) |
| 2 tsk |
Salt |
| 1 msk |
Smjör (eða matarolía) |
| 1 msk |
Síróp |
- Blandið saman mjöli og þurrgeri í skál.
- Velgið mysuna og blandið saman við mjölið, ásamt salti, smjöri og sírópi.
- Hnoðið degið vel og leggið svo í skál með rökum klút eða plastfilmu yfir. Látið hefast í 1 klst.
- Sláið degið niður og mótið fallegt brauð (eða setjið í brauðform), hyljið degið og það látið hefast í uþb. 45 mín eða þar til það hefur tvöfaldað sig.
- Bakið á 180°C í uþb. 35 mín.


