Ávaxtasalat með appelsínukarmellu

Þessi uppskrift er ættuð frá Miðvesturríkjum USA en þar kunna menn svo sannarlega að kitla bragðlaukana.
| 800 g | Blandaðir ferskir ávextir: Bananar, perur, epli og vínber. |
| 8 msk | Sykur |
| 2,5 dl | Appelsínusafi |
| Rifinn börkur af einni appelsínu | |
| 2,5 dl | Rjómi |
- Leysið sykurinn upp á þykkbotna pönnu, þar til hann verður karmellukenndur.
- Bætið appelsínusafa og appelsínuberki á pönnuna. Látið karmelluna leysast upp í safanum (ekki við of háan hita). Látið appelsínusírópið síðan sjóða niður þar til þriðjungur er eftir.
- Kælið appelsínusírópið (gott að skella henni í smátíma í frysti).
- Þeytið rjómann vel og hrærið síðan sírópinu saman við.
- Skolið ávextina og skerið í minni bita. Hrærið þeim saman og setjið í desertskálar með appelsínukarmellunni.
Auðvitað má skipta ávöxtunum út, td. nota jarðaber, bláber, melónur eða hvað annað sem til í ávaxtaskálinni.
Verði ykkur að góðu!


